Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

3.5.2016 14:40

Ábendingar frá veðurfræðingi

Víða á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi hefur snjóað nokkuð frá í gærkvöldi. Á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum er hvasst og lítið skyggni, en skárra á Holtavörðuheiði. Dregur mikið úr bæði snjókomu og vindi, þegar líður á morguninn, einkum eftir kl. 10.

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturlandi.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á Bröttubrekku og hálka á Laxárdalsheiði en annars að mestu greiðfært.

Snjóþekja eða hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum. Hálkublettir eru norður í Árneshrepp. Mokstur stendur yfir á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.  Vegir á láglendi eru greiðfærir.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir á láglendi en eitthvað er um éljagang. Hálkublettir eru á Siglufjarðarvegi og í Norðurárdal en krapi á Vatnsskarði.

Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en hálkublettir eru á Hólasandi og í Dalsmynni. Ófært er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Jökuldalsvegi efri. Vegurinn um Öxi er ófær.


Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér