Umferðarþjónusta - Tilkynning
Ábendingar frá veðurfræðingi
Víða á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi hefur snjóað nokkuð frá í gærkvöldi. Á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum er hvasst og lítið skyggni, en skárra á Holtavörðuheiði. Dregur mikið úr bæði snjókomu og vindi, þegar líður á morguninn, einkum eftir kl. 10.
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturlandi.
Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Laxárdalsheiði og hálkublettir á Svínadal en annars að mestu greiðfært.
Snjóþekja er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og á veginum norður í Árneshrepp. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Vegir á láglendi eru að mestu greiðfærir en þó er krap á nokkrum köflum.
Á Norðurlandi vestra er krapi nokkuð víða á láglendi en snjóþekja eða hálka á fjallvegum.
Norðaustanlands er hálka á Víkurskarði og á Mývatnsheiði og snjóþekja á Tjörnesi, Hólasandi og Mývatnsöræfum og hálkublettir á nokkrum leiðum. Ófært er á Dettifossvegi.
Á Austurlandi eru vegir greiðfærir á láglendi en þæfingsfærð og skafrenningur er á Möðrudalsöræfum og Vatnsskarði eystra. Hálka er á Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði og hálkublettir á Fagradal og Oddskarði. Vegurinn um Öxi er ófær.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér