Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

3.5.2016 8:01

Ábendingar frá veðurfræðingi

Víða á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi hefur snjóað nokkuð frá í gærkvöldi. Á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum er hvasst og lítið skyggni, en skárra á Holtavörðuheiði. Dregur mikið úr bæði snjókomu og vindi, þegar líður á morguninn, einkum eftir kl. 10.

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturlandi.

Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Laxárdalsheiði og hálkublettir á Svínadal en annars að mestu greiðfært.

Snjóþekja er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og á veginum norður í Árneshrepp. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.  Vegir á láglendi eru að mestu greiðfærir en þó er krap á nokkrum köflum.

Á Norðurlandi vestra er krapi nokkuð víða á láglendi en snjóþekja eða hálka á fjallvegum. Þæfingsfærð er á milli Sauðárkróks og Hofsóss.

Norðaustanlands er hálka í kringum Mývatn og snjóþekja á Tjörnesi, Hólasandi og Mývatnsöræfum og hálkublettir á nokkrum leiðum. Ófært er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir á láglendi en þæfingsfærð og skafrenningur er á Möðrudalsöræfum, hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Fagradal og Oddskarði. Vegurinn um Öxi er ófær.


Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér