Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

3.5.2016 6:58

Ábendingar frá veðurfræðingi

Víða á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi hefur snjóað nokkuð frá í gærkvöldi. Á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum er hvasst og lítið skyggni, en skárra á Holtavörðuheiði. Dregur mikið úr bæði snjókomu og vindi, þegar líður á morguninn, einkum eftir kl. 10.

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suðaustur- og Suðurlandi.

Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og hálkublettir og skafrenningur á Bröttubrekku en annars að mestu greiðfært.

Snjóþekja er á flestum  fjallvegum á Vestfjörðum en þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði og ófært á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Vegir á láglendi eru að mestu greiðfærir en þó er krap á nokkrum köflum.

Á Norðurlandi vestra er krapasnjór í Skagafirði og þæfingsfærð milli Sauðárkróks og Hofsóss. Þungfært er á Þverárfjalli en unnið að hreinsun.

Norðaustanlands er hálka í kringum Mývatn og á Hófaskarði og snjóþekja á Tjörnesi og Mývatnsöræfum. Ófært er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir á láglendi en þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum, hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Oddskarði.  Ófært er á Öxi.


Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér