Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

2.5.2016 12:02

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður-og Vesturland. Þoka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Nesjarvallaleið er opinn.

Á Vestfjörðum eru vegir greiðfærir á láglendi en eitthvað er um hálkubletti á nokkrum fjallvegum.

Á Norðurlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru í Dalsmynni, Melrakkastéttu, Sandvíkurheiði og á Hófaskarði og Hálsum en snjóþekja er á Mývatnsöræfum og á Brekknaheiði.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir á láglengi en snjóþekja er á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og á Vatnsskarði eystra. Hálkublettir eru á Háreksstaðaleið, Fjarðarheið, Fagradal og á Oddsskarði. Snjóþekja er á Breiðdalsheiði en þungfært er á Öxi.

Greiðfært er með Suðausturströndinni.

Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér