Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

2.5.2016 9:03

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir að mestu á Suður-og Vesturland en hálkublettir eru á Fróðárheiði. Þoka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er snjóþekja á Hrafnseyrarheiði og Þröskuldum en hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi.

Á Norðurlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru í Dalsmynni, Melrakkastéttu og á Sandvíkurheiði. Þoka er mjög víða.

Á Austurlandi eru hálkublettir á Möðrudalsöræfum og Fagradal. Snjóþekja er á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði en snjóþekja og snjókoma er á Oddsskarði, þæfingur er á Vatnsskarði eystra. Þungfært er á Öxi.

Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér