Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir að mestu á Suður-og Vesturland en hálkublettir eru á Fróðárheiði. Þoka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum er snjóþekja á Hrafnseyrarheiði og Þröskuldum en hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi.
Á Norðurlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru í Dalsmynni, Melrakkastéttu og á Sandvíkurheiði. Þoka er mjög víða.
Á Austurlandi eru hálkublettir á Möðrudalsöræfum og Fagradal. Snjóþekja er á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði en snjóþekja og snjókoma er á Oddsskarði. Þungfært er á Öxi.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér