Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

1.5.2016 14:15

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir víðast um land en þó er krapasnjór norður í Árneshrepp og hálkublettir á örfáum fjallvegum á Austurlandi. Þæfingsfærð á Öxi.

Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér