Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir víðast um land en þó er krapasnjór á Hrafnseyrarheiði og hálkublettir á örfáum fjallvegum á Austurlandi. Snjóþekja er á Vatnsskarði eystra og þæfingsfærð á Öxi.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér