Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

1.5.2016 10:25

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Þröskuldum og krapi  á Hrafnseyrarheiði. Snjóþekja er á veginum norður í Árneshrepp.

Norðanlands eru vegir að mestu auðir en á Austurlandi eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum. Þæfingsfærð er á Öxi og snjóþekja á Breiðdalsheiði. Greiðfært er með suðausturströndinni.

Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér