Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru að mestu greiðfærir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum er snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Gemlufallsheiði en þæfingsfærð á Hrafnseyrarheiði. Snjóþekja er einnig norður í Árneshrepp.
Það er að mestu greiðfært á Norðurlandi en þoka er á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði og Fljótsheiði.
Á Austurlandi er snjóþekja og éljagangur á Fjarðarheiði, Oddskarði og Vatnsskarði eystra. Þæfingsfærð er á Öxi og snjóþekja á Breiðdalsheiði. Greiðfært er með suðausturströndinni.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér