Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

30.4.2016 17:33

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi.  Snjóþekja er á Laxárdalsheiði.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Snjóþekja er á Hrafnseyrarheiði og  norður í Árneshrepp.

Það er að mestu orðið autt á vegum á Norðurlandi vestra en þó eru hálkublettir yst á Siglufjarðarvegi. Hálkublettir eru nokkuð víða á Norðausturlandi og snjóþekja á Hólasandi.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á stöku fjallvegum en autt á láglendi. Greiðfært er með suðausturströndinni.

Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér