Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir um Suður- og Vesturland en þó er hálka á Holtavörðuheiði og hálkublettir á Bröttubrekku og Fróðárheiði. Snjóþekja er á Laxárdalsheiði.
Á Vestfjörðum eru hálkublettir eða snjóþekja á flestum fjallvegum og sumsstaðar skafrenningur. Snjóþekja er einnig norður í Árneshrepp.
það eru hálkublettir eða snjóþekja nokkuð víða á Norðurlandi, einkum á fjallvegum. Krapasnjór er á Hólaheiði og Hófaskarði og þar er einnig þoka.
Á Austurlandi er hálka, snjóþekja eða hálkublettir á fjallvegum en að mestu autt á láglendi. Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum og á Breiðdalsheiði. Greiðfært er með suðausturströndinni.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér